Leita í fréttum mbl.is

Að pakka fyrir regnskógaleiðangur

Hvers slags skótau þarf þegar eyða á fjölda daga í regnskógi? Tilhugunin um iglur og annað félegt sem býr í lággróðrinum verður þess valdandi að nú hef ég ákveðið að gönguskórnir skuli með. Þeir hafa reynst vel árum saman í íslensku mýrlendi og fara ekki að svíkja þó gengið sé um í Amazonskóginum. Fyrst gönguskórnir fara með verða víst ullar hosurnar að fylgja. Smám saman er okkar nánasarlegi farangur að vaxa og nú standa tvær fullar ferðatöskur ferðbúnar.

Reyndar eru þær mest megnis fylltar gjöfum; Harðfiskur og hangikjöt er auðvitað lostæti sem fylgir hvert sem er. Þá hefur verið brugðist við öllum óskum Lilju Steinu sem eftir ársdvöl í hitabeltinu og sambastemmningunni á sér þá ósk heitasta, fyrir utan auðvitað að fá mömmu og litla bróður í heimsókn og leggja í ævintýr, að fá Kókómjólk og kleinur!!!! Alveg dagsatt, bað reyndar líka um snúð en eftir nokkrar vangaveltur var því hafnað en allsendis óvíst hvernig glasúr lifir af öll þessi flug ( fyrst til London - svo London til Sao Paulo og til Salvador).

þá eru ótalið íslenskt lostæti svo sem súkkulaðirúsínur og lakkrísbombur.

 Jæja - þá er að hlaupa einn hring og vökva bæði inni og úti. Hér hefur ekki rignt í 3 vikur - verður tilbreyting að komast í regnskóginn þar sem rignir stundvíslega klukkan 15.45 alla daga í 34 mínúturWink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ásta
Ásta
náttúruunnandi og útivistarkona. Með áhuga á flestu sem finnst undir sólinni. Sér sig nú knúna til að blogga um stjórnmál og þjóðfélagsástandið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband