Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Hlaup úr Gígjökli

Samkvæmt fréttum er hafið hlaup úr Gígjökli, þ.e.a.s. griðarlega rennslisaukning í Lóninu sem skilar sér í Markarfljót.  Fólk í Húsadal talar um vöxt í Krossá, er rétt er eru einnig vatnavextir í ám sem eru austar, þe. Steinsholtsá.

Lán í óláni að vaxandi gróðurhúsaáhrif hafa þynnt Eyjafjallajökul, ekki hvað síst í Toppgígnum, um tugi metra. Þetta hlaup verður því líkast til smátt í samanburði við hlaupið sem varð samfara eldgosi á svipuðum slóðum árið 1821. Ólíkt þá sem var eru nú varnargarðar sem varna því að vatnið hlaupi í Þverá og nú mun reyna á flóðvarnargarðana

En gott að fá aftur fréttir af öðru en Skýrslunni. Eldfjöllin standa sig í að byggja upp landið.


mbl.is Vatnsborð hækkað um 1 metra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórsmörk eða Goðaland

Það verða undur og stórmerki ef hrauneflan nær í Þórsmörk. Hvannárgilið er í Goðalandi og líkur eru á að nái hraunið að renna alveg niður á Krossáraura muni það renna að austanverðu. Framhjá Gunnufuð og loka þangað inn. Síðan áfram niður með Stakk (eða Stak).  Komist hraunið yfir í Þórsmörk verður það væntanlega sunnan göngubrúarinnar sem tengir Goðaland og Þórsmörk.

Standi gosið enn um hrið er líklegast að hraunelfan fylgja árfarvegi Krossár, enda leitar það eftir lægstu punktum í landslagi, eins og áin.

Efst í Hvannárgili má búast við að hraunið fylgi gilbrúninni nokkra hrið og geti fallið í fleiri fossum niður í gilið sem er gríðarlega hátt. Á þessari leið eru jökultotur sem munu bráðna, snöggkæla hraunið sem þá tætist í sundur í gufuspreningum og losar um leið töluvert af eiturgasi.

Ástæða er til að minna menn á að Brennisteinsvetni, Kolmónóxíð og fleira eitur fylgir öllum eldgosum.  Andi menn þeim að sér verða þeir strax máttvana og dofnir uns yfir líkur - það er því erfitt að komast undan hafi menn andað gosgufunum að sér. Nægir að minna á myndir af sauðfé sem lét lífið af þessum orsökum í dældum í nágrenni Heklu. Þá varð dauðsfall vegna gosgufa í Vestmannaeyjagosinu 1973. Það er því algerlega bann

að fara um lægðir og velja alltaf hæstu punkta til að fara eftir.


Eyjafjallajökull og Katla

Það er alveg víst að Katla gaus í kjölfar goss í Eyjafjallajökli einu sinni.

Gos hófst í Eyjafjallajökli í október 1821. Einu og hálfu ári síðar eða í júní 1823 hófst svo gos í Kötlu en gosinu í Eyjafjallajökli lauk.

 

Árið 1612 var gos í Eyjafjallajökli. Þorsteinn Magnússon í Þykkvabæ lýsti í skrifum sínum flóði sem menn hafa leitt likur að að hafi komið úr Kötlu í kjölfarið. Þorvaldur Thoroddsen, mestur allra íslenskra vísindamanna taldi þett rangt hjá Magnúsi og telur að einungis hafi gosið í Eyjafjallajökli í Eldfjallasögu Íslands.  Þorvaldur styðst hins vegar mikið við lýsingar Þorsteins varðandi gosið í Kötlu 1625.

 

Hvort þær hafa gosið í kjölfar hvor annarrar oftar en 1821 og 1823 er alls endis óvíst. Það gæti hafa verið tilviljun þa 19. öld fremur en einhver regla, enda erfitt að ákvarða reglu af einu tilfelli.

 

Á skýringarmyndum af eldstöðvunum má sjá teiknaða innskot sem menn telja súrt og því kallað hraungúl. Hraungúll verður innskotið þó aðeins þegar það kemst upp á yfirborðið. Ef rétt reynist að kvikan í Eyjafjallajökli muni þrýsta innskotinu upp, verður TROÐGOS þar sem súr og seig kvikan treðst upp og storknar jafnharðan ofan á sjálfri sér. Dæmi um slíkt er Mælifell á Snæfellsnesi, áberandi nágranni Snæfellsjökuls.  Slíkt gos væri mikill fengur því að það höfum við jarðvísindafólk ekki upplifað.

 


Keppni í krónusökki

Búast má við því að krónan falli snarpt þegar hún verður sett á flot, segir forsætisráðherrann.  Það er ekki mikið flot í krónu sem sekkur eins og steinn þegar henni er sleppt lausri. Gengið mun botnfalla og lán landsmanna hækka samsvarandi.  Gengistrygging húsnæðislána er staðreynd. Verðbólgan étur börnin sín.

Það er nauðsyn að afnema gengistryggingu innlendra lána. Til að svo verði þarf að endurskoða verðtryggingarfótinn. Hann á ekki að miðast við kaupverð á innfluttum neysluvörum heldur þarf að setja fram nýjar og raunhæfar forsendur. Á meðan á að afnema verðtryggingu húsnæðislána.

Verðbólguskotið sem fylgir sökki flotkrónunnar,  má  ekki verða til þess að fólk missi húsnæði eða trú á framtíðina. það er beinlínis hættulegt að horfa á lánin hækka og hækka, þrátt fyrir að standa alltaf í skilum á hærri og hærri greiðslum meðan eigið fé gufar upp. Séríslensku okurvextir þeirra eru til verndar einni kynslóð á kostnað þeirra sem komu á undan og þeirra sem koma á eftir.

Af hverju skyldu lífeyrissjóðir telja nauðsynlegt að verðtryggja með þessum hætti? það er hvergi gert í löndunum sem við berum okkur samanvið. Skyldi það vera af því að lífeyrissjóðum hefur verið stýrt að sjálfskipuðu liði úr bönkum og atvinnulífi, ekki launþegum sem þó eiga aurinn. Hver man ekki baráttu eigenda almenna lífeyrissjóðins fyrir þvi að fá mann í stjórn?

Auðvitað á fólk að mega leysa valkvæman séreignalífeyrir til að grinka á húsnæðisskuldum. Þeir sem eiga hann. Þeir forkólfar lífeyrissjóða og verkalýðsyfirstéttar eru ekki að hugsa um hagsmuni sinna umbjóðenda þegar þeir hafna slíkum tillögum. Hvað þeir eru að hugsa veit ég ekki  - það er nóg komið af slíkum hugsunarhætti. 

 


Verðtrygging er hægfara eignaupptaka

Verðtrygging er hægfara eignaupptaka

Verðtrygging er séríslenskir aukavextir sem eiga að tryggja að lán haldi verðmæti sínu þannig að ef keypt var fokhelt hús árið 2000 á 20 ára láni eigi lánsupphæðin þegar lánstíma lýkur að duga fyrir sambærilegu fokheldu húsi, að viðbættum vöxtum.

Rökin fyrir verðtryggingunni hafa verið þau að þannig mildist sveiflur í hagkerfinu til hagsbóta fyrir lántakendur. Í verðbólgu megi alltaf lengja lánstímann. Flestir lántakendur eru nú þegar með lán til 40 ára. Þeir hafa því ekki orðið varir við þessi þægindi.  Þvert á móti grípur örvænting flesta þá sem skulda íbúða- og lífeyrissjóðslán þegar horft er til framtíðar. Lánin hækkuðu að meðaltali um 16%  vegna verðbóta á síðustu 12 mánuðum og nýjasta verðbólguspá er 20% vegna gengisfalls krónunnar. Þetta þýðir að höfuðstóll láns sem var 10 milljónir í október 2007 verður orðið tæpar 14 milljónir í október 2009 með verðbótum. Á sama tíma mun verðgildi fasteignarinnar hafa lækkað umtalsvert skv. spá Seðlabanka. Höfuðstólinn hækkar, greiðslubyrði eykst og eigið fé hverfur. Þetta er einfaldlega eignaupptaka í skjóli löggjafans.

 Óréttmæt gengisverðtrygging

Á undanförnum árum hefur verið þensluverðbólga. Verðtryggð lán hafa hækkað samfara hækkandi launum, íbúða- og vöruverði. Í slíku umhverfi má vel rökstyðja verðtryggingu lána. 

Nú er samdráttur á Íslandi. Það er engin neysluverðbólga. Fjöldi manna hefur misst vinnuna. Einkaneysla hefur dregist saman um rúm 7% og vöruskiptajöfnuður við útlönd er hagstæður. Fasteignir hafa hríðlækkað í verði og ný spá Seðlabanka gerir ráð fyrir að íbúðaverð falli um allt að 46% á næstu árum. Þess vegna ættu verðtryggð lán nú að lækka ef rökin fyrir verðtryggingu eiga að halda.

Þær verðhækkanir sem nú hvolfast yfir íslendinga stafa ekki af neyslu heldur gengisfalli handónýtrar krónu og eiga ekkert erindi inn í verðtrygginguna. Ef svo heldur fram sem horfir mun þessi óréttmæta gengisverðtrygging éta upp íbúðir landsmanna.

 Verðtryggingin og lífeyrissjóðirnir

Ef verðtryggingin er lögð niður skaðar það lífeyrissjóðina því þeir geta ekki varið lífeyrisréttindi gegn verðbólgu ef eignir eru óverðtryggðar, þ.e. íbúðalán og skuldabréf vegna íbúðalánasjóðs. En hvert er gagnið í verðtryggingu ef hún étur upp eignir sjóðsfélaga og þeir hætta að geta borgað af lánunum þannig að sjóðirnir neyðist til að taka fjölda íbúða upp í skuldir? Tap lífeyrissjóðanna verður geigvænlegt því spáð er gríðarlegu falli á íbúðaverði á næstu árum. Þá má gera ráð fyrir að greiðslur í lífeyrissjóði lækki með vaxandi atvinnuleysi og lækkandi launum. Það er engum til hagsbóta að fólk missi heimili sín vegna óstjórnar. Eignist ríki og lífeyrissjóðir stóran hluta fasteigna vegna vanskila er voðinn vís. Hvað eiga sjóðirnir að gera við íbúðirnar á óvirkum fasteignamarkaði? Bíða eftir að auðmenn kaupi þær svo fyrir fé sem nú er falið í útlöndum?Það getur ekki verið vilji eigenda lífeyrissjóðanna, fólksins í landinu. Ekki hugnast mér betur tilboðið um að sjóðirnir eignist hluta í íbúðum sem fólk leigi af þeim en geti svo keypt aftur síðar, á verðtryggðu láni. Það er eignaupptaka.

Hagsmunum eigenda flestra lífeyrissjóða er betur borgið ef verðtrygging er afnumin, hið minnsta tímabundið meðan þetta ófremdarástand gengur yfir.

 Tímabundið afnám verðtryggingar strax

Það var veisla á Íslandi sem fjölmennir hópar landsmanna voru ekki boðnir í. Nú lítur út fyrir að veislulokin verði á kostnað þeirra sem ekki  voru boðnir.

Verðtrygging lána lífeyrissjóða og íbúðalánasjóðs til húsnæðis á að afnema tímabundið í sex mánuði. Þegar sól hækkar á lofti ber að skoða hvort verðtrygging lána skuli halda sér eður ei.


Úba í dag 29 julí

Erum annars komin til Uba thar sem vid erum í gódu yfirlaeti med vinum Lilja og fósturfjölskyldunni!

Thessi mynd er tekin hér í dag í skítakulda - thegar vid fórum ad veida - Analu, Caju, Laura, Paula og vid. Tómas var ad veida

Ubá

F6orum á morgun til Ouro Preto - gömlu höfudborgar gulleitarinnar hér í thessu mesta námuhéradi heims - Minas Gerais - og vid aetlum einmitt ad heimsaekja demanta námu og baendur sem eru nýbúnir ad finna edalsteina á sínu landi!

og nú eru bara nokkrir dagar eftir.........


Fernando de Noronha- sjávarparadís

Fernando de Noronha

Vid vitum ekkert um thennan tad annan en her á ad vera ótrúlega  fallegt. Thad hefur í raun enginn sem eg hef hitt komid til Noronha. Stadurinn er á heimsminjaskrá, sjávargardur og er sérstaklega tilgreindur af WWF og fleiri slíkum sem einstakur. Til ad vernda lífríkid umhverfis eyjuna fá einungis 470 manns leyfi til ad koma thangad sem ferdamenn ã dag. Og fyrir thá nád greida menn 1000 krónur á dag . Vid erum í 6 daga.

baia do porco

 

Af eldi borin 

Noronha birtist vid sjóndeildarhringinn. 370 kílómetra frá landi rís thessi eldfjallaeyja á heitum reit sem hefur verid ad kólna svo ekki hefur gosid í um 1,5 milljón ar.

Minnir óneitanlega á Ísland – blágrýti og studlaberg, gígtappar og rofleifar. Thad sem er ödruvísi eru snjóhvítar strendurnar, Pálmatréin sem blakta í vindinum og fiskar í öllum mögulegum litum.

praia do leao

 

 

Höfrungar í thúsundatali

Thad er ekki ofaukid hversu margir höfrungar eru hér - í dagrenningu hvern einasta dag koma their í stórum flokkum inn á Baia de Golfinas - höfrungaflóa - vid vöknum kl.5 og göngum thangad til ad verda vitni ad thví thegar vadan kemur inn thetta eru "spinning" dýr - stökkva hátt í loft upp og snúa sér í hringi- stórkostlegt - en myndavélin min er í fýlu....  verd bara ad koma aftur seinna. En thessi er tekin af bát.

hofrungar

 

 

 

Medal fiska og skjaldbaka

´Sjórinn hér er alveg taer! - svo taer ad ég get tekid myndir beint ofan í sjóinn - alveg kristall. Yndislegt ad snorkla - vid erum alla daga útí í sjó 28 stiga heitur sjõrinn vid midbaug svíkur ekki - hlýr og saltur.

Vid viljum prófa ad kafa og loks á naest sídasta degi förum vid í thad - og nú erum vid öll föngud - thvílíkt aevintýri - nú er bara ad drífa sig ad fá sér skírteini - tharna opnadist enn einn nýr heimur. 

Hingad langar mig svo sannarlega aftur!

fiskarskjaldbaka

 

kofun

Tharf varla ad segja mikid frá thví....


Recife - túristabaeli vid midbaug

Recife er ein af staerstu borgum Brasiliu. Hér búa um 3 milljónir manna. Túristabaeli – méd théttum blokkarödum medfram afskaplega fallegri strönd.  Ef thad er eitthvad sem Brasília á nóg  af thá eru thad undra fagrar strendur.

Hingad saekja túristar frá Evrópu,, bein flug baedi frá Kaupmannahöfn og Helsinki fyrir utan ad vera vinsaell vidkomustadur Portugala og Spánverja. Ì lyftunni í hótelinu okkar er andstyggileg auglýsing thar sem gestum  er vinsamlegast bent á ad hótelid veiti ekki upplýsingar um kaup á barnavaendi auk thess sem kaup á slíku sé ólöglegt og vardi thunga dóma. Ástandi hlýtur ad vera alvarlegt fyrst gripid er til svona auglýsinga og óneitanlega fer um mann hrollur af tilhugsuninni um thá menn sem eru svo illa haldnir á sálinni ad saekjast eftir slíku – thvílík eymd.

 Eins konar litla AmsterdamThad er mikid af fallegum gömlum byggingum í Recife. Margar theirra eru frá sextándu öld byggdar af hollenskum gydingum. Fallegir litir á húsunum thrátt fyrir ad hér thurfi ad mála árlega thví thad er baedi heitt og rakt hér vid midbaug. 

Olinda – baer á heimsminjaskrá

Olinda  - fallegur - er gamall baer sem núordid er inni í Recife. Hér eru alveg ótrúlega saetar thröngar götur og falleg lítil hús. Thetta er líklega einn best vardveitti “kolónial” baer í heimi og vela d thví kominn ad vera á heimsminjaskránni.  Hér er mikid um ferdamenn og grídarlegt úrval af minjagripum. Vid kaupum útskorid thorp af manni sem er ad búa thau til úr thykkum trjáberki. Fyrir einn Reais eru nokkur ungemmi til í ad dansa fyrir okkur brot úr Foré – karnivaldansi thví hér um slódir er thad ekki Samba sem raedur ríkjum.

olinda

 

Fangelsi faer nýtt  líf

Gamla fangelsid í Recife hefur ödlast nýtt líf. Thad er núna markadur thar sem lista menn selja vörur sínar – einn klefi á mann. Gott ef haegt vaeri ad breyta fleiri fangelsum í listasöfn – Tommi finnur strax lausan klefa og stingur ser inn.

 í jail 

Enn á ný í flug

Gaedinn okkar hann Leonardo er ótrúlega fródur og elskulegur. Mér lídur eins og milljónamaering ad vera ad skoda thessa fallegu borg méd einka gaed og bílstjóra en thetta er haegt hér í Brasilíu thar sem launin eru bara brot af thví sem vid thekkjum og óneitanlega er thetta frábaert. Geta verid eins lengi eda stutt á hverjum stad og mann langar – eda naestum tví.

Vid eigum ad fara í flug seinni partinn og núna til Fernando de Noronha – eyjunnar sem brassar telja fallegasta stad í Brasilíu. Thar aetlum vid ad dvelja taepa viku!!!


Naetur aevintýrid - myndirnar

Hér eru myndir af tarantúlunum og nótt í hengirúmi!

Fyrst í náttúrulegum umhverfi - svo á lakinu mínu og loks af gódum naetursvefni

 

tarantúla 1tarantúla 2

tommi sofandi


Alveg ótrúlega falskur söngur - Bless Amazon

Thad berast einhver undarleg  óhljód fyrir húshornid. Ég fer ad kanna málid. Kokkurinn er ad syngja en ekki einn. Hann hefur komid sér upp kór. Og enn sá kór. Hann samanstendur af nokkrum páfagaukum, tveir raudir arar og 3 graenir gaukar sem syngja af hjartans list thar sem their taka undir tregafullt brasilískt ástarljód flutt af vel söngfaerum kokkinum. Kokkurinn hefur gefid gaukunum afgangs ávexti kvölds og morgna árum saman og í stadinn syngja their. Eru ordnir svo framagjarnir ad their meira ad segja syngja í falsettu vidlagid bara sí svona!

páfsi

Tími til ad yfirgefa Amazon

Nú er bara eftir ad fara ad hinum vídfraegu "Meeting of the Waters" thar sem leirlitud Solimnos ánin og hin Svarta Rio Negra renna hlid vid hlid um 8 kílómetra leid án thess ad blandast og mynda hina einu sönnu Amazon. Verd ad vidurkenna ad thad er miklu meira gaman ad skoda thetta fyrirbaeri úr lofti - staerdin er einfaldlega med theim haetti - skýrara ad skoda thetta heima thar sem Sogid rennur út í Hvítá og úr verdur Ölfussá.  Sáum enga bleika höfrunga - thví midur - langar mikid ad sjá thá aftur. Liturinn rennur mér ekki úr huga - their eru ótrúlega bleikir, eiginlega fáranlegur litur á dýr. Tek nú samt myndir - Og hér er ein af hinum vídfraegu vatnaliljum sem eru metersbreidar og geta borid 7 kíló - eda eins og Tommi segir- madur tharf bara nogu margar!

vatnaliljur

Gámaskip lengst inn í landi og fljótandi oliusalar

Thad eru undarlegt ad sigla um Amazon ánna meira en thúsund kílómetra inni í landi og thad er allt fullt af stórum flutningaskipum. Andinn á erfitt med ad taka thad í sátt ad á geti verid margra k[ilómetra breid og minni meira á Eyrarsund en án.

Sérstaklega fundust mér merkilegar fljótandi olístödvarnar. Meira segja hér úti á midri Amazon eru olífélögin í samkeppni. Thad fljóta 3 olíusöluprammar hlid vid hlid og reyna ad lada til sín vidskiptavini.

Leitin ad Anakondu, Jagúar og Stóru mauraaetunni

Thrátt fyrir ítarlegar tilraunir hefur okkur ekki teksit ad sjá thessi kvikindi svo nú eru gód rád dýr. - Reyndar ekki svo ýkja dýr - vid kaupum bara 3 mida í dýragardinn fyrir 300 krónur. Thar sjáum vid Anakondu og jagúar. Afskaplega notalegur lítill dýragardur med illkvittnasta svarta pardus sem ég hef á aevinni vitad. Hefdi líklega  misst fingur ef ekki hefdi verid búid ad vara vid honum!!! Hann stekkur langt upp í loft og glefsar í grindurnar enn eftir mörg ár í gardinum er andinn ekki nidurbrotinn. Fáum okkur ís - thad er ógurlega heitt.

svartur pardus

Flugid til Recife

Thad er allt í uppnámi vegna hins skelfilega flugslyss í Sao Paulo. Allt flug er í molum, miklar seinkanir og flug felld nidur.  Vid fljúgum enn og aftur til Brasilíu og eigum thadan áfram flug til Recife - Thar er okkar bedid af Leonardo sem er gaedinn okkar thar. Hann faer ad bída rúma 2 tíma auklega - vid lendum ekki fyrr en klukkan er langt gengin í tvö ad morgni - og erum ad fara í skodunarferd um borgina strax um morgunin. Ákvedum ad fresta henni fram til klukkan 9.

 


Næsta síða »

Höfundur

Ásta
Ásta
náttúruunnandi og útivistarkona. Með áhuga á flestu sem finnst undir sólinni. Sér sig nú knúna til að blogga um stjórnmál og þjóðfélagsástandið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband